Level B2
  • Hvað gerðist eiginlega?
  • Ég eiginlega gleymdi að taka kjúklinginn út úr frystinum.
  • Hvað ætlum við eiginlega að gera í dag?
  • Ég kemst eiginlega bara eftir klukkan þrjú.
  • Ég veit það eiginlega ekki alveg sjálfur.
  • Um hvað ertu eiginlega að tala?
  • Heyrðu, hver er eiginlega forsætisráðherra núna?
  • Ég er búinn að vinna of mikið, þarf eiginlega að sofa.
  • Æ, ég næ eiginlega ekki að mæta.
  • Veistu, ég er eiginlega alveg sammála honum.
  • Hvað meinarðu, eiginlega?
  • Hahah, hvað er eiginlega í gangi?
  • Hvað kostar eiginlega að láta senda hluti hingað frá Kína?
  • Langar þig ekkert í sund? – Nei, eiginlega ekki.